Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Mbl.að gleyma sér?

mbl hefur greinilega gleymt sér,það þarf ekki að blogga við þessa frétt,
mbl.is Lýst eftir tveimur stúlkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

strax?

Þetta ber vott af reynsluleysi í mínum huga,er ekki lágmark að taka við embætti áður en menn fara að gapa við erlenda fjölmiðla.Nær að segja okkur þetta fyrst eða hvað?
mbl.is Hugnast norska krónan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðir?

Við eigum að nýta auðlindir okkar allar, það er ekki sanngjarnt að velja úr og friða dyr bara vegna þess að okkur finnst þau svo falleg.Dyraríkið er heild og við höfum ekki leyfi til að umbuna sumum en ekki öðrum við erum ekki guðir.Við röskum bara jafnvægi í náttúrunni
mbl.is Hefjum hrefnuveiðar í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskyldumyndir

jæja vinir og vandamenn og aðrir sem haf áhuga á minni tilveru  nú loks bætti ég við myndum á síðuna mina set meira fljótlega knús knú

Segir hann þá af sér?

Sýnir hann gott fordæmi og gerir það sem við ætlumst til að aðrir geri?

En samt gott hjá honum hugsandi maður 


mbl.is Baðst afsökunar á ummælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju er verið að mótmæla?

Ég var að átta mig á að það er ekkert minnst á hverju fólk er að mótmæla.jú slagorð heyrir maður gegn ríkisstjórninni en hvað átti hún að gera,eða gerði of mikið af? Það er kreppa allstaðar þannig að varla er það stjórnin? hvaða lausn yfirsást ríkistjórninni? eða veit nokkur lausn á vanda okkar?Hvern eigum við að kjósa í staðinn? ég hef engan heyrt nefndan sem virðist hafa hugmynd um hvað á að taka við

ekki einu sinni hörðustu andstæðingar hafa viðrað hvernig við komumst út úr þessu .Við erum víst svartsýn þjóð um þessar mundir, er það ekki munur á bjartsýni og svartsýni að annar bendir á lausnir hinn á sökudólga.Kusum við ekki þessa stjórn?erum við ekki sek um að hafa ekki skoðað hvað við kusum?hvernig ætlum við að koma í veg fyrir að við kjósum heimskulega aftur? Hmm. verða kannski þingmenn í mótmælagöngu að mótmæla lélegum kjósendum?


mbl.is Mótmælt í góðri sátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falleg saga

Þetta skil ég,og tel eðlilegt,setja þá sem við elskum í fyrsta sæti það eru þeir sem við lifum fyrir.


mbl.is Kurteisir Bretar sukku með Titanic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2-300 manns? ekki mínir fulltrúar

hvað eru margir sem eru heima og vilja að að við fáum að velja 200þúsund?meðan nokkrar hræður eru að fá lausn á afbrigðilegum kenndum kveikja í og skaða aðra.Vorkenna svo sjálfum sér og segja Geir lét mig kasta steininum  Ríkistjórnin lét mig kveikja í, er þetta fólk eða unglingar ekki með sjálfstæða hugsun?þeir sem skipuleggja svona mótmæli án þess að tryggja öryggi sinna stuðningsmanna eða annarra eru þeir ekki ábyrgir fyrir neinu?Ef þeir kæmust til valda myndu þeir þá ekkert hugsa um mína  velferð heldur?má ekki láta þá mæta og svara fyrir þau slys sem hafa orðið á samkomum á þeirra vegum.fóru þeir kannski á eftir útrásarvíkingunum?hvernig væri að þeir svöruðu?

    guð veri með öllum á Austurvelli í nótt


mbl.is Mótmælendur við Stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brennuvargar.EEEH. góðir farþegar

EEHH góðiR góðir farþegar þetta var lélegur flugmaður svo við hentum honum út
er nokkur hér sam kann að fljúga breiðþotu? vinsamlega gefi sig fram við manninn með skíðahúfuna áður en við hröpum í hafið
eins og það var nú gaman að svala hefndarþorstanum


mbl.is Mótmælendur ganga niður í bæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veslings mótmælendurnir alltaf saklausir

Eg hef mikla samúð með mótmælendum þeir telja sig ekki ábyrga gerða sinna þannig að einhver verður að axla ábyrgð þeirra Þeir eru blásaklausir af eldinum sem þeir kveiktu auðvitað hafa þeir afsökun það er ríkisstjórninni að kenna að þeir kveiktu hann og settu okkur hin í hættu Guði sé lof að þeir eru ekki á þingi með sínar skíðahúfur og nafnlausu skoðanir samt heimta þeir nöfn annara til að ásækja án dóms og laga en eru ekki reiðubúnir að standa reikningsskil gerða sinna
mbl.is Margt getur farið úrskeiðis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband