Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Under construction

Smá viðhaldsvinna hjá mér tók myndirnar út á meðan er að laga myndirnar af mér í photoshopHappy

það eru víst einu lýtaaðgerðirnar sem ég hef efni áGetLost 


Under construction

myndirnar teknar út  vegna viðhalds hmm. ég vissi ekki að ég ætti viðhaldBlush

 


Jæja myndir

Smile

nú er ég loksins búinn að bæta við myndum  í albúmin mín njótið


Tónleikar

Jæja þá eru Björk og Sigurrós með tónleika í Laugardal og einhverjir fleiri

  heyrst hefur að Þorleifur mæti kannski þarna líka. Til að svo megi verða verð ég að bregða undir mig

 hjólum og mæta.Ég hef haft mikið að gera í tölvudóti og bílaviðgerðum.

gott að fá smá tilbreytingu. gaman að vera meðal fólks.Krakkarnir ekki heima og kannski hitti ég einhverja sem ég þekkiSmileog einhverjir sem þekkja mig hitta mig

chaos Tolli


Annir

Jæja nú er kannski að róast hjá mér og fer að gefa mér tíma í að  skrá eitthvað úr mín lífi Annars finnst mér orðið"Blogg" eitt af ljótari orðum sem ég hef heyrt.og finnst vont að nota það en ástæða þess að ég hef ekki verið að skrifa hér er annir og skipulagsleysi.Annir eru svosem í lagi en skipulagsleysi ekki.en stendur vonandi til bóta.Og eins er ég með mikið af myndum sem ég ætla að setja hér inn.

                  lifum heil 

   ykkar  Þolli

 


Nágrannar why dont we just get along

jæja ég var að brasa við bílinn minn fyrir utan og fékk nágrannan fúlan yfir drasli sem ég var með í kringum mig ég brást skjótt við og sagði honum að mín lóð væri mitt einkamál og þegar hann vildi ræða það betur sagði ég að hann gæti sleppt þeirri umræðu ég ræddi ekki mína einkalóð við hann og hélt svo áfram að vesenast í bílnum og lét sem ég sæi hann ekki. En svo fór ég að hugsa er ég of snöggur að svara, kannski var önnur lausn,ég átta mig ekki alveg á því.Ekki vil ég valda manngreyinu angri en samt mín lóð,og kannski var rétt hjá honum að það er drasl á lóðinni minni. enda að vesenast í bílaviðgerðum og vil fá frið við það kemur honum ekki við .Hmm. þarf að skoða mína framkomu 

Ef ég stilli þessu upp öðruvísi ég hefði brosað og sagt já ég skil að þér finnist óþægilegt að hafa sóðalegt svona rétt hjá þínu húsi.ég skal reyna að taka svoldið til þegar ég er búinn svo þú þurfir ekki að hafa þessa sjónmengun fyrir augunum.

hmm. hefði ég verið sáttur? ég á þessa lóð.og ræð hvort ég er með hana í rusli eða ekki mér lyður ekki vel ef ég læt undan þar sem ég er á mínu svæði hefur einhver rétt til að koma og setja útá mitt umhverfi og ætlast til að ég taki því þegjandi.

Kannski átti aths. rétt á sér.Ef ég set mig í hans spor þá væri ég sennilega eitthvað að pirra mig á þessu hvernig hefði ég getað komið á framfæri aths. án þess að fá menn upp á móti mér?Kannski heilsa og spjalla nefna að svona fallegt hús sé fallegra ef það nýtur sín í fallegu umhverfi .og okkar beggja ávinningur að hafa svoldið snyrtilegt í kringum húsin okkar .Mig langar ekki að standa í deilum við nágrannann er viss um að þetta er öndvegis maður og gæti verið gott að hafa hann með sér og eins að vera honum til aðstoðar þegar við á.

jæja hver er svo niðurstaðan ég breiti ekki afturábak. á ég að gera eitthvað? Tala við hann segja að ég hafi hlustað og þetta sé rétt ég muni reyna að taka tillit með að hafa svoldið snyrtilegt og fallega aðkomu að innkeyrslunni okkar. en hafa samt hugfast að ég mun vera að vesenast með bílana á planinu mínu og fórna ekki þeim rétti

Kannski það sé niðurstaðan stundum þarf að fá fólk til að brosa og syna því að skoðanir þess séu einhvers virði.kannski kemur jákvætt út úr þvíJoyful

jæja . en hvert er markmið mitt "Að geta verið í friði að laga mína bíla og jafnvel annara á mínu plani"

svo er bara spurningin hvernig ég næ því marki .óumdeilanlegt er að ég má það og þarf ekki að hlusta á skoðanir annara um það.En kannski ekki besta leiðin best er að útskýra minn rétt og að ég hlusti  a hans skoðanir en þetta sé það sem ég sé að gera núna.


Mættur á mína vakt

Jæja nú er ég farinn að virka (að vísu röng virkni en samt)Smilereyðubúin að skilja það eftir sem tilheyrir fortíðinni og halda áfram, veikindin höfðu meiri áhrif á mig en ég átti von á.En nú hlakkar mig til að fara að láta hlutina ganga og leyfa fólki að finna að ég er hér enn og til einhvers nýtur.eða kannski bara sjálfum mérFootinMouthég á góða vini og góða fjölskyldu sem hafa verið að axla ábyrgð meðan ég hef verið frá.Nú er ég vonandi að slást í hópinn og get synt í verki að ég er þakklátur.mér hentar illa að vera ekki sá sem færir björg í bú.Útvörður sem er sínum trúr og til staðar.ég hef fengið að njóta þess að aðrir eru til í að standa vaktina fyrir mig og er þakklátur og klökkur InLoveEn nú er ég kominn og munar vonandi um

Það sem skyptir máli er það sem er framundan ,hitt er bara til að ylja sér með í ellinni,

Góðar stundirSmile

 


Hugleiðing

   

Ég var að fara yfir daginn eins og ég geri stundum, er ég að gera mitt besta?er ég að læra af mistökum mínum? er ég að endurtaka mistök sem ég gerði í gær?fyrir ári?10árum?stundum verð ég fyrir vonbrigðum þegar ég sé að ég er að falla í gryfju sem ég hélt að ég væri búin að afgreiða .

Væri orðinn of þroskaður til að renna á rassgatið aftur og aftur hmm.og afturBlush.Og líka þegar ég hef átt skítadag ekkert orðið úr neinu ætlaði að gera svo mikið í dag en,betra ef ég hefði ekki farið framúr.ég get orðið sár eftir svoleiðis uppgötvun.

En ég er líka orðin færari um að horfa á það jákvæða sem ég geri jafnvel þegar dagur sem ætti ekki einu sinni að vera á almanakinu vegna þess að mér fannst sólin aldrei hafa komið upp.haninn galaði aldrei þann dag.Þá sé ég að ég fór út í búð þó að sporin hafi verið þung og ég eldaði mat jafnvel þó að ég vildi helst kúra undir feldi  og sá engan tilgang í neinu.það litla sem ég geri á svoleiðis dögum er miklu meira virði en það mikla sem skeður á góðum degi

Það er enginn vandi að vera duglegur og framkvæmdasamur þegar sól skín í heiði og heilsan og baráttuþrek er í hámarki. En það er þegar við erum með allt niður um okkur og finnst við varla eiga tilverurétt sem reynir á okkur,þá kemur líka í ljós hverjir standa þétt með okkur. 

Þeir eru fleiri en maður heldur, bara ef maður gefur þeim tækifæri til þess 

knús knúsKissing


Að loknu helgarfríi

jæjPIC_0011a þá er helgarfríið búið og kominn aftur á spítalann.

Það var yndislegt að vera með krakkana og yljar mér hvað þau eru góð og hjálpsöm.Steini skutlaði mér í búð og Kiddi sótti mig og skutlaði mér í Rvík og Siggi tók æfingarakstur frá Rvík og heim.Elly og Kristín hjálpuðu ti lheima.

 Þannig eru þau alltaf ef ég segi "viltu gera þetta fyrir mig?" er svarið alltaf jájá.

Við höfðum það gott um kvöldið og horfðum á video ég Siggi,Ellý og Kristín litla við höfðum osta og nammi ég bjó til kakó. Smile.getur lífið orðið betra?Nú er ég komin aftur og er ég að vinna í heilsunni.það verður að hafa forgang.myndir  eru í möppu" Að loknu helgarfríi"

 


Afmæli

W00t jæja ég átti afmæli á spítlaanum  Joyful krakkarnir komu og Kristín litla kom með gjöf sem hun gerði sjálf.Rósa kom með köku og Siggi kom með Kristínu litlu þrátt fyrir að hann væri hálf lasinn Mamma  Stjáni  og Þrúða léku á alls oddi og það var gaman að fá gesti.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband